Síðan 1950

Jöklarannsóknafélag­ Íslands

Markmið félagsins er að stuðla að jöklarannsóknum og ferðalögum á jöklum landsins, gefa út tímaritið Jökul, ásamt fréttabréfi og gangast fyrir fræðandi fyrirlestrum og myndasýningum.

Jöklarannsóknafélag­ Íslands

Fréttir og tilkynningar

Comments Box SVG iconsUsed for the like, share, comment, and reaction icons

Kvikmyndin Um tímann og vatnið var frumsýnd á Íslandi í fullum sal í gær í Háskólabíói. Myndin hefur fengið mjög góðar undirtektir erlendis á ýmsum hátíðum og þykir mikil listasmíð.

Á meðan jöklar bráðna og afar og ömmur hverfa yfir móðuna miklu, breytir Andri Snær kvikmyndasafni fjölskyldunnar í tímahylki til að varðveita það sem er óðum að hverfa, minningar og sögur. Um tímann og vatnið er óður til lands og jökla og umfjöllun um hvað það þýðir að lifa á tímum umbreytinga en myndin byggir á samnefndri bók. Mörg okkar í Jöklarannsóknafélagi Íslands stöndum efninu nærri, ekki bara vegna þess að umfjöllunarefnið eru jöklar, heldur þar sem stór hluti myndarinnar fjallar um sögu heiðursfélaga JÖRFÍ, Árna Kjartanssonar og Huldu Filippusdóttur, afa og ömmu höfundarins, Andra Snæs.

Árni og Hulda tilheyrðu hópi frumherjanna í Jöklarannsóknafélaginu sem ruddu brautina fyrir komandi kynslóðir. Árni var einn helsti hvatamaður þess að koma á árlegum vorferðum JÖRFÍ á Vatnajökul og átti stóran þátt í uppbyggingu skálanna í Jökulheimum og á Grímsfjalli. Vorið 1956 fóru þau Hulda í sína fyrstu sameiginlegu vorferð, sem jafnframt var brúðkaupsferð þeirra hjóna. Sú ferð var viðamikil og á þeim tíma voru engir skálar á jöklinum, svo gist var í tjöldum. Nafnið á Brúðarbungu, syðst í Kverkfjöllum, varð til í þessari sömu brúðkaupsferð og er vel við hæfi að eitt af örnefnum Vatnajökuls tengist þeim merku brautryðjendum.

Bæði voru þau metin að verðleikum innan félagsins og gerð að heiðursfélögum; Árni árið 1975 og Hulda árið 2000. Þau ræktuðu sambandið við jöklana og voru haldin „jöklabakteríunni“, sem færði þeim upplifanir í ægifagurri náttúru, góðar minningar og traust vinabönd sem myndin gerir mjög góð og falleg skil. Hulda var sjálfsörugg, hrein og bein, og hafði lag á að greina kjarnann frá hisminu. Árni taldi það alltaf sína mestu gæfu að hafa kynnst Huldu og átt með henni langt og gott líf.

JÖRFÍ óskar höfundum til hamingju með myndina og hvetur alla til að sjá þessa mynd en hún er sýnd í Smárabíó og Bíó Paradís á næstunni.
... See MoreSee Less

Image attachment
Image attachment

Stutt samantekt úr vorferð JÖRFÍ vorið 2026.

... See MoreSee Less

Iframe Video Thmbnail

0 CommentsComment on Facebook

Vorferð Jöklarannsóknafélags Íslands árið 2026 er afstaðin og tókst með eindæmum vel. Mikill undirbúningur lá að baki ferðinni að venju þar sem gengið var frá tækjum, vistum og flutningi á efni fyrir viðhald á Nýja skála á Grímsfjalli í síðustu viku í maí. Vegna gulra veðurviðvarana var brottför seinkað af öryggisástæðum til sunnudagsins 31. maí, þótt lítill framvarðarhópur hafi lagt af stað degi fyrr til að sinna mælingum á Breiðamerkurjökli.

Á sunnudeginum kom allur 25 manna hópurinn og tækjafloti sér örugglega upp Skálafellsjökul. Þaðan var haldið á Grímsfjall, þar sem bækistöðvar voru í skálum Jöklarannsóknafélagsins á Grímsfjalli.

Næstu dagar fóru í vinnu, mælingar og viðhald mælitækja víðsvegar um jökulinn, en veðrið lék við hópinn stærstan hluta ferðarinnar. Unnið var að umfangsmiklum íssjár- og þyngdarmælingum á Bárðarbungu og Dyngjujökli, og sett var upp myndavél við sporð þess síðarnefnda til að vakta mögulegt framhlaup.

Einnig var afkoma og gas mælt í Grímsvötnum, boraður djúpur afkomukjarni á Tungnaárjökli til að kvarða hitastreng, og sýni sótt í Tungnaár- og Köldukvíslarjökul fyrir örplastrannsóknir. Eitt af stærri verkefnum ferðarinnar var að kanna aðgengi að Kverkfjöllum.

Þar sem hefðbundin leið var orðin ófær vegna aukins jarðhita var sérhæfð deild vélsleðamanna send á undan til að stika út nýja og örugga leið austan við Gengissig svo hægt væri að ljúka nauðsynlegu skálaviðhaldi og komast í GPS stöð í Kverkfjöllum.

Ferðin snérist ekki einungis um vinnu, heldur einnig um góðan félagsskap og útiveru í einstakri náttúrufegurð Vatnajökuls. Stór hluti leiðangursins fór hinn árlega og vinsæla Gullna hring um suðvesturhluta Vatnajökuls. Þar gafst tími til að njóta veðurblíðunnar, ganga á Pálsfjall og renna sér niður fjallshlíðar á snjóbretti.

Samvinnan í hópnum var til fyrirmyndar allan tímann og þrátt fyrir þrönga sambúð á Grímsfjalli sneru allir aftur heim góðir vinir.

Ferðinni var fagnað með veglegri veislu og dansleik á palli Nýja skála á Grímsfjalli fram á rauða nótt, áður en tækjaflotinn skilaði mannskapnum örugglega niður af jöklinum næsta dag.
... See MoreSee Less

Image attachment
Image attachment
Image attachment
Image attachment
Image attachment

Örmálþing - Hverfandi landslag: Jöklar, öryggi og sjónræn arfleifð - mailchi.mp/55075a51bd3a/vorfer-jrf-17995637 ... See MoreSee Less

Örmálþing - Hverf

Aðalfundur JÖRFÍ - Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 kl. 19:00-21:00 - mailchi.mp/d5e886d460cc/vorfer-jrf-17994905 ... See MoreSee Less

Aðalfundur JÖRFÍ

❄️ Nýtt hefti Náttúrufræðingsins er mætt – tileinkað jöklum! ❄️

Glæsilegt nýtt hefti af Náttúrufræðingnum er komið út!

Í heftinu má meðal annars finna:
Stóra yfirlitsgrein um íslenska jökla: Allt það helsta um stöðu þeirra og nýjustu rannsóknir á mannamáli.

Jöklarannsóknafélag Íslands 75 ára: Stutt og ítarleg grein um sögu félagsins í tilefni af merkum áfanga.

Heftið er prýtt fallegum ljósmyndum af íslenskri náttúru þar sem jöklar fara með aðalhlutverkið.

Heftið verður fáanlegt í öllum bókabúðum Pennans Eymundsson fyrir þá sem eru ekki áskrifendur.
... See MoreSee Less

Image attachment
Image attachment
Image attachment
Image attachment
Image attachment

... See MoreSee Less

Load more

Velkomin á Jöklavefsjá 

Jöklavefsjáin er samstarfsverkefni Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnunar Háskólans, Landsvirkjunar, Jöklarannsóknafélags Íslands, Landmælinga Íslands og Náttúrustofu Suðausturlands. Hún birtir mælingar og yfirlit um rannsóknir og breytingar á íslenskum jöklum. Hægt er að nálgast mæligögn og athuganir sem safnað er með reglubundnum hætti af innlendum stofnunum, fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum. Ritstjórn jöklavefsjárinnar uppfærir gagnasafnið jafnharðan og nýjar mælingar eru gerðar.

Jöklavefsjá

Skráning í  félagið – Join us

Til að ganga í félagið, getur þú fyllt út formið hér til hliðar.

Félagsaðild árið 2025 kostar kr. 8200,- á ári og fylgir henni eintak af Jökli, fagtímariti Jöklarannsóknafélags Íslands og Jarðfræðafélags Íslands. Árgjald fyrir námsmenn og fjölskyldufélaga er kr. 4200,-.

To join the club, you can fill out the form.

Membership in 2025 costs ISK. 8200 per year and is accompanied by a copy of Jökull, a professional journal of the Icelandic Glaciological Society and the Icelandic Geological Society. The annual fee for students and family members is ISK 4200, -.

Styrkja Jörfa – Contribute

 

Styrktar reikningur Kt. 670169-3839 Nr. 515-14-102002

Fill out my online form.