Fréttir og tilkynningar
Velkomin á Jöklavefsjá
Jöklavefsjáin er samstarfsverkefni Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnunar Háskólans, Landsvirkjunar, Jöklarannsóknafélags Íslands, Landmælinga Íslands og Náttúrustofu Suðausturlands. Hún birtir mælingar og yfirlit um rannsóknir og breytingar á íslenskum jöklum. Hægt er að nálgast mæligögn og athuganir sem safnað er með reglubundnum hætti af innlendum stofnunum, fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum. Ritstjórn jöklavefsjárinnar uppfærir gagnasafnið jafnharðan og nýjar mælingar eru gerðar.
Skráning í félagið – Join us
Til að ganga í félagið, getur þú fyllt út formið hér til hliðar.
Félagsaðild árið 2022 kostar kr. 8000,- á ári og fylgir henni eintak af Jökli, fagtímariti Jöklarannsóknafélags Íslands og Jarðfræðafélags Íslands. Árgjald fyrir námsmenn og fjölskyldufélaga er kr. 4000,-.
To join the club, you can fill out the form.
Membership in 2022 costs ISK. 8000 per year and is accompanied by a copy of Jökull, a professional journal of the Icelandic Glaciological Society and the Icelandic Geological Society. The annual fee for students and family members is ISK 4000, -.
Styrkja Jörfa – Contribute
Styrktar reikningur Kt. 670169-3839 Nr. 515-14-102002
Ný grein í Jökli, tímariti Jöklarannsóknafélags Íslands.
Sources of continuous tremor associated with jökulhlaups and eruptions of Grímsvötn volcano, Iceland
Grímsvatnaeldstöðin er meðal virkustu eldstöðva landsins. Hún er að mestu leyti hulin jökli. Samspil jarðhita, eldvirkni og jökulsins býður upp á fjölbreytilega hegðun og náttúrufyrirbrigði sem óvíða er hægt að rannsaka. Jarðhitinn bræðir jökulinn og bræðsluvatnið auk yfirborðsbráðar af vatnasviði Grímsvatna safnast fyrir í öskju eldstöðvarinnar. Vatnshæðin vex þar til vatnið brýst undir jökulstífluna og úr verða jökulhlaup sem ryðja sér leið undir jöklinum og koma undan honum á Skeiðarársandi. Auk þess safnast kvika í kvikuhólf eldstöðvarinnar undir öskjunni með reglubundnum hætti og leiðir kvikusöfnunin til eldgosa þegar ákveðnum þrýstingi er náð. Stundum geta jökulhlaupin verkað eins og gikkur á eldvirknina. Ef kvikuþrýstingur er hár getur þrýstingslækkun í öskjuvatninu hleypt af stað eldgosi. Þetta gerðist í gosunum 1922, 1934 og 2004. Jökulhlaup áttu hins vegar ekki þátt í gosunum 1983, 1998 og 2011. Flest hlaup verða þó án þess að gos fylgi, t.d. 2008 og 2010. Allri þessari virkni fylgir svokallaður skjálftaórói, þ.e. stöðugur titringur sem kemur fram á skjálftamælum. Sérstaklega mælist óróinn vel á skjálftamæli á Grímsfjalli sem er staðsettur á öskjubarminum, rétt við útfall vatnsflóðanna úr öskjunni. Borin hafa verið kennsl á a.m.k. þrjár tegundir af óróa. Vegna þess hve fjölbreytileg virknin í Grímsvötnum er má tengja þessar tegundir við ákveðnar tegundir virkni.
Hlekkur á greina er hér: jokull.jorfi.is/articles/jokull2023.73/jokull2023.73.055.pdf
Nánar má heyra höfund greinarinnar, Pál Einarsson, gera grein fyrir innihaldi hennar á upptöku frá aðalfundi JÖRFÍ í Febrúar síðastliðnum en upptakan er aðgengileg hér: www.youtube.com/watch?v=kIQmQjiEZgM&t=2360s ... See MoreSee Less
1 CommentComment on Facebook
Góð samantekt
Ný grein í Jökli, tímariti Jöklarannsóknafélags Íslands.
Geodetic mass balance of Mýrdalsjökull ice cap, 1999–2021
Landlíkanafkoma Mýrdalsjökuls 1999–2021
Afkomu Mýrdalsjökuls, fjórða stærsta jökuls landsins (520 ferkílómetrar árið 2019), hefur verið minni gaumur gefinn en afkomu þriggja stærstu jöklanna, Vatnajökuls, Hofsjökuls og Langjökuls. Hér eru notuð hæðarlíkön byggð á SPOT5 gervihnattaljósmyndum (2003– 2017), leysimælingum úr flugvél (lidar, 2010), Pléiades gervihnattaljósmyndum (2014–2021) og loftmyndum frá 1999, og ArcticDEM landlíkanasafnið (2010–2018) til þess að meta afkomu Mýrdalsjökuls.
Frumúrvinnsla hæðarlíkananna fólst í láréttri og lóðréttri samstillingu, síun og fyllingu í eyður. Síðan var svokallaðri Gaussian tölfræðigreiningu (Gaussian Process, GP) beitt til þess að reikna samfellda tímaröð landlíkana með 15×15 m lárétta upplausn og 30 daga millibili fyrir tímabilið 1999 til 2021. Breytingar í rúmmáli og afkoma voru reiknaðar yfir 5 og 6 ára tímabil og þær túlkaðar með samanburði við mælingar á afkomu Vatnajökuls, Hofsjökuls og Langjökuls.
Meðalafkoma Mýrdalsjökuls á tímabilinu 1999– 2021 er áætluð −1,23±0,10 m vatnsgildis á ári, og hefur farið lækkandi að tölugildi frá −1,83±0,13 m vatnsgildis á ári (1999–2005) til −0,41±0,03 m vatnsgildis á ári (2016–2021).
Greining afkomu fyrir þrjú mismunandi ísflæðisvið á Mýrdalsjökli (norðurhluti jökulsins, suðurhluti jökulsins og Kötlujökull) sýnir nokkurn mun milli svæðanna en svipaðar breytingar með tíma.
Hlekkur á greina er hér: jokull.jorfi.is/articles/jokull2023.73/jokull2023.73.035.pdf ... See MoreSee Less
0 CommentsComment on Facebook
Aðalfundur Jöklarannsóknafélags Íslands var haldinn þriðjudaginn 28. febrúar 2024 kl. 19:00 í sal 132 í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands.
Tómas Jóhannesson var fundarstjóri og Finnur Pálsson fundarritari.
Engar tillögur komu fram um kjör heiðursfélaga þetta árið. Því næst var flutt skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins starfsárið 2023 en hana má nálgast sem viðhengi við aðalfundargerð. Nína Aradóttir gjaldkeri lagði fram og kynnti endurskoðaða reikninga félagsins til samþykktar.
Kosning stjórnar og varastjórnar var skv. 4. grein laga félagsins.
Stjórn Jöklarannsóknafélags Íslands árið 2024 skipa:
Andri Gunnarsson, formaður
Hrafnhildur Hannesdóttir
Guðfinna Th. Aðalgeirsdóttir
Nína Aradóttir
Magnús F. Sigurkarlsson
Varastjórn:
Sigurrós Arnardóttir, Eyjólfur Magússon, Siguður Vignisson og Salka Kolbeinsdóttir
Úr stjórn gekk Kristín Jónsdóttir. Rétt er að þakka henni vel og innilega fyrir góð störf í þágu félagsins.
Nánar má lesa um niðurstöður aðalfundar í fundargerð sem aðgengileg er á heimasíðu félagsins.
Að loknum hefðbundnum aðalfundar störfum sagði Páll Einarsson frá uppruna skjálftaóróa í Grímsvötnum.. Skjálftaórói, þ.e. samfelldur titringur jarðar, fylgir oft virkni eldstöðva og getur nýst vel til eftirlits með virkninni. Með samanburði á óróamælingum á Grímsfjalli í tengslum við nokkur hlaup og gos í Grímsvötnum má greina þrjár tegundir óróa og rekja þær til ferla í eldstöðinni, þ.e. hlaupa, suðu í jarðhitakerfi og eldgosa.
Upptaka frá kynningunni er aðgengilega á Youtube rás félagsins: ... See MoreSee Less
0 CommentsComment on Facebook
Ný grein í Jökli, tímariti Jöklarannsóknafélags Íslands.
Tímarit Jöklarannsóknafélagins kom út á dögunum og ættu fróðleiksfúsir félagsmenn að hafa fengið eintak inn um póstlúguna. Jökull er einnig gefin út á netinu. Þetta er 73. árgangur sem kemur út nú.
Fyrsta greinin í heftinu þetta árið ber nafnið:
The destabilization of a large mountain slope controlled by thinning of Svínafellsjökull glacier, SE Iceland
Í greininni er lýst hreyfingum á nokkrum bergmössum umhverfis Svínafellsjökuls á suðausturhorni landsins. Stærstar þessar hreyfinga eru í norður hlíð Svínafellsfjalls þar sem um það bil 2 km langt sprungukerfi hefur verið kortlagt á yfirborði. Athuganir með ýmsum fjarkönnunargögnum, frásögnum sjónarvotta og kortlagningar á staðnum gefa til kynna að sprungukerfið hafi myndast á tímabilinu frá 2003 til 2007. Þetta á sér stað á sama tíma og þynning jökulsins var hvað hröðust á síðastliðnum 131 árum. Frá árinu 2011 hefur jökullinn ekki þynnst mikið, og má að líkindum leita hluta skýringa á því að árið 2013 féll skriða á jökulinn og hefur skriðuefnið einangrað jökulinn og hægt á bráðnun hans. Mælingar sýndu hreyfingar á hlíðinni fram til ársins 2017. Á því ári var komið fyrir mælitækjum á sprunguna en síðan þá hefur lítil sem engin hreyfing mælst. Stórt brotsár í hlíðum dalsins ofan jökulsins og efnismiklir endagarðar með stórum bergbrotum fyrir framan jökulinn gefa til kynna að berghlaup hafi áður fallið á jökulinn. Nýlegar hitastigsmælingar í berginu umhverfis jökulinn, ásamt eldri veðurfarsgögnum benda ekki til þessa að þiðnun sífrera hafi orsakað þessar hreyfingar. Niðurstöður athuganna sem kynntar eru hér benda til þess að hop og þynning jökla vegna loftslagsbreytinga hafi og muni hafa frekari áhrif á stöðugleika brattra fjallshlíða í nágrenni íslenskra jökla.
Greinina sem heild má lesa hér: ... See MoreSee Less
jokull.jorfi.is
jokull.jorfi.is
0 CommentsComment on Facebook
Minnum á aðalfundinn í kvöld í Öskju kl 19:00.Áminning - Aðalfundur JÖRFÍ á morgun, miðvikudag kl 19:00 - mailchi.mp/07e5ef8db04e/arshatijoklarannsoknafelagsins-12-november-17079574 ... See MoreSee Less
0 CommentsComment on Facebook
Áminning - Aðalfundur JÖRFÍ á morgun, miðvikudag kl 19:00 - mailchi.mp/07e5ef8db04e/arshatijoklarannsoknafelagsins-12-november-17079574 ... See MoreSee Less
0 CommentsComment on Facebook
Alþjóðlega jöklarannsóknarfélagið (e.International Glaciological Society, IGS) hefur valið Helga Björnsson jöklafræðing sem heiðursmeðlim í félaginu. Þetta eru ein helstu verðlaunin sem IGS veitir en aðeins fáir hafa hlotið þau gegnum tíðina. Verðlaunin hljóta einstaklingar fyrir framúrskarandi framlag til jöklafræða á sínum ferli, hvort sem er á landsvísu eða alþjóðlega.
Helgi leiddi rannsóknarstarf á íslenskum jöklum í marga áratugi, var hvatamaður að vöktun afkomu og orkuskiptum við yfirborð jökla, verkefni sem enn eru unnin í dag á þeim grunni sem Helgi byggði upp. Helgi leiddi einnig rannsóknir á jökulhlaupum, botnkortagerð auk fjölda annarra rannsóknarverkefna.
Helgi var formaður JÖRFÍ í níu ár, frá 1989 til 1998, var ritstjóri Jökuls, tímarits Jöklarannsóknafélagsins en auk þess hefur hann setið í ritstjórn tímaritsins um langt skeið. Helgi var einnig mjög virkur í starfi IGS, og sat í stjórn IGS 1978-1981, 1984, 1990-1993 og varaformaður 1999-2001.
Jöklarannsóknafélagið óskar Helga innilega til hamingju!
Nánar má lesa um Helga í samantekt IGS, þar sem farið er stuttlega yfir feril hans:
www.igsoc.org/about/awards/honorary-membership/helgi-bjornsson ... See MoreSee Less
3 CommentsComment on Facebook
Hamingjuóskir!
Til hamingju Helgi
Til hamingju Helgi þú átt þetta algerlega skilið.
... See MoreSee Less
1 CommentComment on Facebook
Dásamleg mynd!
Tungnahryggsjökull er einn af stærri jöklum á Tröllaskaga og situr hátt innst í afdölum Kolbeinsdals, og samanstendur af Vestari Tungnahryggsjökli (hægra megin) og Eystri Tungnahryggsjökli (vinstra megin) og Barkárdalsjökli (sem tengist þeim Vestari).
Mynd: Oddur Sigurðsson ... See MoreSee Less
1 CommentComment on Facebook
Þjóðbraut til forna. Hólamannavegur og Hólamannaskarð