Fréttir og tilkynningar
Velkomin á Jöklavefsjá
Jöklavefsjáin er samstarfsverkefni Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnunar Háskólans, Landsvirkjunar, Jöklarannsóknafélags Íslands, Landmælinga Íslands og Náttúrustofu Suðausturlands. Hún birtir mælingar og yfirlit um rannsóknir og breytingar á íslenskum jöklum. Hægt er að nálgast mæligögn og athuganir sem safnað er með reglubundnum hætti af innlendum stofnunum, fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum. Ritstjórn jöklavefsjárinnar uppfærir gagnasafnið jafnharðan og nýjar mælingar eru gerðar.
Skráning í félagið – Join us
Til að ganga í félagið, getur þú fyllt út formið hér til hliðar.
Félagsaðild árið 2025 kostar kr. 8200,- á ári og fylgir henni eintak af Jökli, fagtímariti Jöklarannsóknafélags Íslands og Jarðfræðafélags Íslands. Árgjald fyrir námsmenn og fjölskyldufélaga er kr. 4200,-.
To join the club, you can fill out the form.
Membership in 2025 costs ISK. 8200 per year and is accompanied by a copy of Jökull, a professional journal of the Icelandic Glaciological Society and the Icelandic Geological Society. The annual fee for students and family members is ISK 4200, -.
Styrkja Jörfa – Contribute
Styrktar reikningur Kt. 670169-3839 Nr. 515-14-102002


Stutt samantekt úr vorferð JÖRFÍ vorið 2026.
... See MoreSee Less
0 CommentsComment on Facebook
Vorferð Jöklarannsóknafélags Íslands árið 2026 er afstaðin og tókst með eindæmum vel. Mikill undirbúningur lá að baki ferðinni að venju þar sem gengið var frá tækjum, vistum og flutningi á efni fyrir viðhald á Nýja skála á Grímsfjalli í síðustu viku í maí. Vegna gulra veðurviðvarana var brottför seinkað af öryggisástæðum til sunnudagsins 31. maí, þótt lítill framvarðarhópur hafi lagt af stað degi fyrr til að sinna mælingum á Breiðamerkurjökli.
Á sunnudeginum kom allur 25 manna hópurinn og tækjafloti sér örugglega upp Skálafellsjökul. Þaðan var haldið á Grímsfjall, þar sem bækistöðvar voru í skálum Jöklarannsóknafélagsins á Grímsfjalli.
Næstu dagar fóru í vinnu, mælingar og viðhald mælitækja víðsvegar um jökulinn, en veðrið lék við hópinn stærstan hluta ferðarinnar. Unnið var að umfangsmiklum íssjár- og þyngdarmælingum á Bárðarbungu og Dyngjujökli, og sett var upp myndavél við sporð þess síðarnefnda til að vakta mögulegt framhlaup.
Einnig var afkoma og gas mælt í Grímsvötnum, boraður djúpur afkomukjarni á Tungnaárjökli til að kvarða hitastreng, og sýni sótt í Tungnaár- og Köldukvíslarjökul fyrir örplastrannsóknir. Eitt af stærri verkefnum ferðarinnar var að kanna aðgengi að Kverkfjöllum.
Þar sem hefðbundin leið var orðin ófær vegna aukins jarðhita var sérhæfð deild vélsleðamanna send á undan til að stika út nýja og örugga leið austan við Gengissig svo hægt væri að ljúka nauðsynlegu skálaviðhaldi og komast í GPS stöð í Kverkfjöllum.
Ferðin snérist ekki einungis um vinnu, heldur einnig um góðan félagsskap og útiveru í einstakri náttúrufegurð Vatnajökuls. Stór hluti leiðangursins fór hinn árlega og vinsæla Gullna hring um suðvesturhluta Vatnajökuls. Þar gafst tími til að njóta veðurblíðunnar, ganga á Pálsfjall og renna sér niður fjallshlíðar á snjóbretti.
Samvinnan í hópnum var til fyrirmyndar allan tímann og þrátt fyrir þrönga sambúð á Grímsfjalli sneru allir aftur heim góðir vinir.
Ferðinni var fagnað með veglegri veislu og dansleik á palli Nýja skála á Grímsfjalli fram á rauða nótt, áður en tækjaflotinn skilaði mannskapnum örugglega niður af jöklinum næsta dag. ... See MoreSee Less
0 CommentsComment on Facebook
Örmálþing - Hverfandi landslag: Jöklar, öryggi og sjónræn arfleifð - mailchi.mp/55075a51bd3a/vorfer-jrf-17995637 ... See MoreSee Less
1 CommentsComment on Facebook
Nýr árgangur af Jökli, tímariti Jöklarannsóknafélags Íslands, er nú kominn út og er aðgengilegur í heild sinni á vefnum jokull.jorfi.is.
Allir skráðir félagsmenn ættu að hafa fengið prentaða eintak sent heim í pósti, en ef blaðið hefur ekki borist og þú telur þig eiga rétt á því geturðu sent tölvupóst á gjaldkeri@jorfi.is.
Í þessum nýja árgangi er ríkuleg umfjöllun um jökulhlaup í sérstöku þema þar sem greint er frá bæði nýlegum og sögulegum hlaupum frá svæðum á borð við Mýrdalsjökul, Hofsjökul, Skaftárkatla og Jökulsá á Fjöllum.
Einnig er að finna nýjar rannsóknargreinar sem fjalla um kvikuflæði og hvernig hraun rennur ofan í sprungur á rekbeltum Íslands. Þá er kafað ofan í ástand Öskjuvatns þar sem greint er frá óvæntri ísrýrnun að vetri til ásamt breytingum á vatninu yfir lengri tíma.
Að vanda birtir blaðið nýjustu mælingar og skýrslur um ástand, afkomu og breytingar íslenskra jökla ásamt yfirferð yfir helstu verkefni, starfsemi og vorferð Jöklarannsóknafélagsins. ... See MoreSee Less
Visit Profile
Jöklarannsóknafélag Íslands Iceland Glaciological Society
www.facebook.com
0 CommentsComment on Facebook
Aðalfundur JÖRFÍ - Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 kl. 19:00-21:00 - mailchi.mp/d5e886d460cc/vorfer-jrf-17994905 ... See MoreSee Less
1 CommentsComment on Facebook
🩵Mælum með að kíkja við í Skaftafellsstofu á sýninguna Vorferð.
❄️Nánari upplýsingar um Jöklarannsóknafélagið og um yfirlit og breytingar á íslenskum jöklum má finna á www.jorfi.is og www.islenskirjoklar.is ... See MoreSee Less
Sýningin Vorferð í Skaftafellsstofu - Vatnajökulsþjóðgarður
www.vatnajokulsthjodgardur.is
Í október 2025 var sýning Jöklarannsóknafélags Íslands: Vorferð sett upp í farandsýningarrými Skaftafellsstofu.0 CommentsComment on Facebook
❄️ Nýtt hefti Náttúrufræðingsins er mætt – tileinkað jöklum! ❄️
Glæsilegt nýtt hefti af Náttúrufræðingnum er komið út!
Í heftinu má meðal annars finna:
Stóra yfirlitsgrein um íslenska jökla: Allt það helsta um stöðu þeirra og nýjustu rannsóknir á mannamáli.
Jöklarannsóknafélag Íslands 75 ára: Stutt og ítarleg grein um sögu félagsins í tilefni af merkum áfanga.
Heftið er prýtt fallegum ljósmyndum af íslenskri náttúru þar sem jöklar fara með aðalhlutverkið.
Heftið verður fáanlegt í öllum bókabúðum Pennans Eymundsson fyrir þá sem eru ekki áskrifendur. ... See MoreSee Less
1 CommentsComment on Facebook
... See MoreSee Less
1 CommentsComment on Facebook
Minnum á haustráðstefnuna á morgun - uppfærður hlekkur á streymi - mailchi.mp/2a93a9524392/vorfer-jrf-17993367 ... See MoreSee Less
2 CommentsComment on Facebook