Síðan 1950

Jöklarannsóknafélag­ Íslands

Markmið félagsins er að stuðla að jöklarannsóknum og ferðalögum á jöklum landsins, gefa út tímaritið Jökul, ásamt fréttabréfi og gangast fyrir fræðandi fyrirlestrum og myndasýningum.

Jöklarannsóknafélag­ Íslands
1950-2022 © Jöklarannsóknafélagið skálar og ferðalög 1920 x 1080 pixels @SimmiBrink

Skálar og ferðalög

Skálar Jöklarannsóknafélagsins hafa verið byggðir með þarfir rannsókna á jöklum að leiðarljósi. Fyrstu skálarnir, á Breiðamerkursandi og í Esjufjöllum voru reistir sumarið 1951. Síðan hafa bæst við fleiri skálar en aðalaðstaða félagsins er á Grímsfjalli við Grímsvötn og í Jökulheimum við Tungnaárjökul. Alls á félagið 12 hús á 7 stöðum. Öll húsin utan eitt eru á eða við Vatnajökul.

Velkomin á Jöklavefsjá 

Jöklavefsjáin er samstarfsverkefni Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnunar Háskólans, Landsvirkjunar, Jöklarannsóknafélags Íslands, Landmælinga Íslands og Náttúrustofu Suðausturlands. Hún birtir mælingar og yfirlit um rannsóknir og breytingar á íslenskum jöklum. Hægt er að nálgast mæligögn og athuganir sem safnað er með reglubundnum hætti af innlendum stofnunum, fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum. Ritstjórn jöklavefsjárinnar uppfærir gagnasafnið jafnharðan og nýjar mælingar eru gerðar.

Jöklavefsjá

Skráning í  félagið – Join us

Til að ganga í félagið, getur þú fyllt út formið hér til hliðar.

Félagsaðild árið 2022 kostar kr. 7.800,- á ári og fylgir henni eintak af Jökli, fagtímariti Jöklarannsóknafélags Íslands og Jarðfræðafélags Íslands. Árgjald fyrir námsmenn og fjölskyldufélaga er kr. 3.900,-.

To join the club, you can fill out the form.

Membership in 2022 costs ISK. 7,800 per year and is accompanied by a copy of Jökull, a professional journal of the Icelandic Glaciological Society and the Icelandic Geological Society. The annual fee for students and family members is ISK 3.900, -.

Styrkja Jörfa – Contribute

 

Styrktar reikningur Kt. 670169-3739 Nr. 515-14-102002

Tvær léttar spurningar

4 + 13 =